*Anna Teresa Morales*
Þýskaland
24.09.2006 21:31:40 / gonza

Nýtt blogg með einari mínum...

Nýtt blogg

www.blog.central.is/einaroganna

endilega að skoða


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 16:22:05 / gonza

Næstum því allt orðið fínt...

Jæja þá er íbúðinn okkar að verða komin í gott stand... þarf bara aðeins að laga til áður en maður fer og tekur myndir fyrir ykkur... kláruðum í dag að setja saman seinustu hlutina og erum við illa stolt af okkur... Við erum sko búin að vera Bubbi Byggir í nokkra daga... bara gaman það :D

Ég er eins og er bara að læra...var reyndar að klára eitt verkefni , þannig að það er bara að byrja á því næsta !! Var að horfa á minningaathöfnina um Steve Irwin, illa sorglegt maður að hann sé dáin ... ekkert gaman lengur að horfa á svona dýralífsþætti án hans en svona er þetta...

Ég er komin með einhver andskotans útbrot á hendinni og mig klæjar ekkert smá í þau... þarf að fara til Húðlæknis á morgun og láta athuga þetta... Ég held að þetta sé einhver sýking en vonandi er þetta ekkert... Það kemur í ljós þá á morgun... Það á ekki að ganga af manni sko, alltaf eitthvað nýtt sem er að bögga mig !!!!

Einar minn er að fara að keppa í kveld þannig að maður kíkir þangað... vonandi gengur betur hjá þeim en í seinustu leikjum... Reyndar kvíði ég pínu að þurfa að fara ein því að ég er ekki ennþá búin að ná að kynnast það mikið að fólki en það kemur bara....

en jæja eg hef nú ekki mikið meira að segja, ætla að fara að taka mig til fyrir leikinn ! Hafið það gott og hvernig væri að kvitta aðeins þið sem eruð að lesa hérna...

kv. Anna Teresa og Rassálfur...


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 21:00:11 / gonza

Alein í kotinu...

Já þá er maður ein í kotinu, þar sem að Jón Hasselhoff kvaddi okkur í gær eftir að hafa verið hérna í næstum því 2 vikur ! Ég vona bara að hann hafi skemmt sér vel og hafi haft það gott hjá okkur, því að það var mjög gaman að hafa hann !

 Ég er búin að hafa það ágætt í dag þó að ég væri alveg til að hafa Einar minn hérna hjá mér, en hann var að keppa í dag og var 8 tíma keyrsla í leikinn þannig að kemur ekki heim fyrr en um 6 í nótt og þá ætla ég að vera sofnuð... Ég allavega fór á markaðinn þegar ég vaknaði og keypti ávexti og blóm...Ég er nú búin að reyna að vera að læra í dag og hefði það alveg mætt ganga betur, en ég náði að gera það sem ég ætlaði mér!

Það var svo bara Subway í matinn hjá mér, maður nennir ekkert að elda þegar að maður er svona ein! Ég sit núna í sófanum að horfa á einhverja mynd. Ætla að hitta Evu systir á netinu á eftir og spjalla aðeins við hana áður en ég fer að sofa... Þannig að þetta hefur verið algjör leti og læri dagur ... alltaf gott að hafa einn þannig inn á milli

Á morgun ætlum við Einar sko að horfa á enska boltann, erum komin með Premier og þar er hægt að horfa á hann... við höfum ekki séð leik í enska boltanum í 2 ár nema sá sem að við fórum á og er okkar markmið að verða aðal aðdáendurnir aftur :D

Ég ætla bara að kveðja og halda áfram að horfa á þessa mynd, það er allt að gerast í henni... skemmtið ykkur þið sem ætlið á djammið kveld og hafið það gott...

Kær kveðja Anna Teresa og Rassálfur


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.09.2006 13:35:02 / gonza

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Inga, hún á afmæli í dag !!!

Inga Bringa Fjarstýinga á afmæli í dag... víííí :D

Ég vill bara senda þér elskan mína bestu afmæliskveðjur og vonandi hefurðu það gott í dag með þeim sem að þér þykir vænt um.

Fyrir nákvæmlega ári þá varstu hérna hjá mér á afmælinu þínu og var það snilldar dagur...Get ekki sagt annað en að þið Mamma fóruð gjörsamlega á kostum og mun ég aldrei gleyma þeim vikum

Við heyrðum nokkurt sem að við gleymum aldrei eins og

  • Hvar eru hnífapörin...
  • Zigarettenpause...
  • Vill einhver eiga þennan poka, nei ég bara spyr.
  • Þýskaland er æði.

Ég ætla bara að láta nokkrar myndir fylgja hérna með til að rifja upp seinasta afmælisdaginn þinn...

AFMÆLISKAKAN

AFMÆLISKVÖLDVERÐUR

Hérna er svo afmælisgjöfin frá okkur þangað til að þú færð alvöru gjöfina um jólinn...

Hafðu það allra best í dag Inga mín... okkur þykir alveg ótrúlega vænt um þig og söknum þess að liggja ekki í sófanum þínum heima hjá þér og klára allt nammið þitt... en það verður bara endurtekið um jólinn þegar að við kíkjum á klakann...

Hafðu það gott Love...

Kveðja...


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 18:56:05 / gonza

allt í góðu ...

Já það er nú ekki hægt að segja annað en að það sé nóg að gera hérna í Þýskalandi...Síðan ég bloggaði síðast höfum við eiginlega verið á fullu ! Við byrjuðum á því á föstudaginn að kíkja til Köln og var það alveg stórkostlegt, hafði aldrei komið þangað áður. Tókum bara lestina, sem reyndar var ekki mjög gaman því að það var ógeð heitt úti !

Það var allavega nóg að skoða í Köln og ég get ekki sagt annað en að Dómkirkjan þar sé geðveikt flott og stór, mér leið eins og maur þegar ég stóð hliðina á henni...Ég keypti mér íþróttabuxur og peysu til að eiga svona þægilegt... hefði reyndar viljað kaupa mér allt þarna en maður er ekki alveg það ríkur... strákarnir keyptu sér líka eitthvað og fékk Helgi Rambo sér Tattoo !! Svo komum við heim um miðnætti um kvöldið og allir dauðþreyttir..

Daginn eftir var farið á fætur eldsnemma og skellt sér í skemmtigarð hérna klukkutíma frá sem að heitir Movie Park... algjös snilld það sko. Strákarnir breyttust í litla stráka og fóru í flest tækin meðan ég fór í eitt eða eitthvað!! en við skemmtum okkur allavega frábærlega og eyddu heilum degi þar... komum dauðþreytt heim um kvöldið...

Helgi Rambo kvaddi okkur svo eldsnemma um nóttina og ók lestina á flugvöllinn... það var gaman að hafa hann hérna og þökkum við honum kærlega fyrir heimsóknina :P

í gær var svo skroppið í IKEA og verslað aðeins í búið og get ég ekki sagt annað en að þetta hafi verið skemmtilegasta IKEA ferð hingað til... Erum að verða búin að koma okkur almennilega fyrir :haha::haha::haha:

 

Í dag var svo fyrsti tíminn hjá lækninum okkar hérna í Þýskalandi og var það bara fínt... hann tók fullt af testum og mér leist bara mjög vel á þetta!  ÞArf svo að kíkja aftur þangað í október... allavega er allt í góðu og allir hraustir!

En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra þannig að ég bið bara að heilsa öllum og hafið það gott

Anna Teresa og Rassálfurinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 19:43:16 / gonza

Hélt að lífið yrði auðveldara ...

Ég sem að hélt að maður gæti kannski tekið því rólega í svona ár eftir að maður væri búin að útskrifast en svo er ekki. Þar sem að ég er skráð í fjarnám en eina önnina og er varla að nenna því þá get ég ekki annað sagt en að þetta er erfitt. Mér hefur alltaf líkað mjög vel við að vera í fjarnámi en núna er ég í ruglinu... ég er semsagt í eðlisfræði og vá hvað ég var næstum því búin að hlaupa á vegg þegar ég var að byrja að gera verkefnið áðan... en vonandi rætist úr þessu hjá mér ! Svo er ég bara að bíða eftir bókum í íslensku til að lesa.. ég er semsagt í barnabókmenntum og þarf að lesa fullt af barnabókum en er það ekki bara gott fyrir alla !!

Annars er bara allt gott að frétta af okkur hérna úti, við skruppum aðeins í bæ hérna rétt hjá í dag. Strákarnir voru að versla sér eitthvað... við erum svo að fara til Köln á morgun og hlakka ég til þar sem að ég hef aldrei komið þangað !! og Svo er það bara tívolí á laugardaginn... nóg að gera hjá okkur..

En ég ætlaði nú bara aðeins að tjá mig hérna.. en hef ekkert merkilegt að segja svo að ég ætla bara að hætta núna !!

Hafið það gott

Kv. Anna og Rassálfurinn


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 22:25:09 / gonza

I'm alive...

Já þá hefur maður ákveðið að setjast niður fyrir framan tölvuna og skrifa smá blogg hérna handa mínum diggustu aðdáendum, sem að ég voni að eigi eftir að hafa gaman af þessu ! 

Já þá má eiginlega segja að sumarið sé búið og var margt sem að gerðist þetta sumarið

  • Ég útskrifaðist loksins og var það algjör snilld
  • Hélt upp á afmæli mitt með Evu systir
  • Fór að vinna í 10-11 sem var líka algjör snilld
  • Djammaði með góðum vinum
  • Skrapp í 2 vikur til Þýskalands
  • Fór á tónleika með James Blunt
  • Kom við í Danmörku í einn dag og hitti félagana
  • Fór í hina árlegu Vagló 2006
  • Eyddi miklum og góðum tíma með fjölskyldunni
  • Náði að vera veik mikin hluta af sumrinu

En núna er maður semsagt komin út til Þýskalands og er bara gott um það að segja, búin að sakna Einars míns mikið en ég hef verið bara mikið með mínum góðum vinum í sumar sem að ég sakna ekkert smá mikið núna. Við semsagt komum hérna í fyrradag ég, Jón Stefán og Helgi Hrafn og tók ferðin okkar ágætan tíma hingað eða um 13 klukkustundir og má segja að það hafi margt gerst á þeim tíma... en við komumst allavega heil og höldnu hingað út og má segja að gærdagurinn hafi verið eytt í það að vinna upp tapaða orku.

En ég get ekki sagt annað en að það sé stemming hér á bæ með þrjá fullorðna karlmenn á heimilinu , ég lét þá litlu vaska upp í gær þannig að þetta er ekkert bara sældarlíf hérna hjá mér...nei segji svona

Skólinn er að byrja hjá mér, ég semsagt skráði mig aftur í fjarnám frá VMA til að bæta aðeins við mig...ég fór semsagt í 15 einingar og má þar nefna eðlisfræði, íslensku, LOL og fleira... þannig að maður heldur bara áfram að láta þrátt fyrir að vera ný orðin stúdent...

Keyptum okkur ryksugu og ristavél í dag, þannig að maður verður bara að þrífa á morgun og bjóða uppá ristað brauð !

En eins og þið hafið örugglega fattað þá hef ég lýtið sem ekkert að segja þannig að ég er að hugsa um að hafa þetta ekki mikið lengra en vonandi verður maður bara virkur að blogga og vonandi mun einhver lesa hérna hjá mér og væri gaman að þið mynduð skrifa eitthvað í skoðanir bara svona svo að ég viti af ykkur þarna.

Læt eina mynd af mér fylgja með síðan í afmælinu mínu í sumar

En hafið það gott og við heyrumst...

Kv. Anna Teresa og Rassálfurinn

Allir að kjósa MAGNA í kveld...


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 10:18:25 / gonza

Hallo....

Kellan hefur ta akvedid ad blogga herna i hitanum i deutschland...  tad er semsagt oged heitt herna eda um 34 stiga hiti og eg er virkilega ad bradna ...

Eg aetla nu ekki ad skrifa mikid tvi ad eg aetla ad blogga almennilega tegar eg er komin heim med venjuleg lyklabord 

  • Vid erum semsagt nuna hja markusi og Söruh ad gista i MAnnheim 
  •  vid forum i brudkaupid a laugardaginn og var tad aedislegt sko, ekkert sma fallegt.
  • erum buin ad skoda adeins um baeinn...
  • Eg er adeins buin ad versla...
  • Erum ad fara a JAmes BLunt a midvikudag...
  •  aetlum kannski til  Köln i vikunni...
  • Föstudag erum vid ad fara a Vinhatid eda Weinfest...
  • Laugadag ae tlum vid ad skella okkur a sjoskidi sem  ad verdurgedveikt og svo erum vid ad fara a nyja stadinn a sunnudag...

Eneg aetla ekki ad skrifa meira tarf ad skreppa i  baeinn fyrir markus og svo a ad skella ser i sund...

KV. Anna Teresa


» 11 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 00:02:32 / gonza

....

Jæja þá er komið að smá framhaldi með þessa fótbolta dúdda... þeir eru nú ekki af verri kantinum og vona að þið njótið vel þið gellurnar sem að eruð að skoða.....

Sergio Ramos

Cesc Fabregas

Raul Gonzales

Talfan er eitthvað sló þannig að ég ætla að láta þetta nægja þar sem að ég er a fara að sofa og vinna í ´fyrrmálið ...

kv. Anna Teresa


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 21:24:14 / gonza

Þokkalega flottir

Hæhæ Gellur !
hérna kemur eitt blogg fyrir ykkur...


Ef þeir eru ekki flottir sko....



"Ljungberg"


"Beckham"


"Christiano Ronaldo"


"Ibrahimovic"


"Van Der Vart"


"Totti"


"Nedved"


"Trézéguet"

Og síðast en ekki síst...

"Pétur Jóhann"


Kv. Anna Teresa


Framhald síðar...


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 17:33:24 / gonza

Já maður er latur þessu helvítis bloggi...

Já maður er ekki alveg að nenna að vera alltaf að blogga svona á sumrin.. það er nú ekkert merkilegt búið að vera að gerast hjá mér nema að ég er alltaf að vinna og að vera með einari mínum.... Við búin að vera að fara í mat til allra og bara gaman það ... svo er maður bara búin a vera að horfa á HM og ég hugsa alltaf það sama " afhverju er maður ekki í þýskalandi þegar svona er í gangi" En ég fer nú að fara þangað... ekki nema 1 og hálf vika þangað til og ég hlakka ekekrt smá til ... en ég nenni ekki að skrifa meira... ÞAð er grillveisla í stekkjo í kvöld og fullt af fólki að koma þanngi að við heyrumst ...b bæbæb

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 15:17:47 / gonza

Bara fyrir Guðrúnu...

jæja þá er komið aðð  bloggi sem að er bara gert fyrir Guðrún Jónu vinkonu mína sem að er komin á klakann...

En það sem að er búið að eiga sér stað um helgina  hjá mér er nú alveg eitthvað...

Ég byrjaði á því að passa á Föstudaginn og var ég að passa hann Arnar Elí strákinn þeirra Brynju og Gulla....

Það var mjög gaman og var fyndið að sjá hvað margir snéru sig úr hálslið þegar að ég var úti að labba með hann...

föstudagskvöldið fór ég svo í innflutningsparty til Gylfa

Kaffi Akureyri

Þar vr fullt af fólki sem að ég þekkti ekkert en samt var líka fólk þar sem að ég þekkti og var bara mjög gaman þar... kíkti svo aðeins á Kaffi ak or Amour en fór bara snemma heim eftir að hafa rúntað aðeins með íbba og arnþóri...

Á laugadaginn var hgaldið afmæli hjá mér og Evu systir og var það bara mjög gaman miða við allt veseni sem að atti sér stað fyrr um daginn... ég vona bara að fólk hafi skemmt sér...allavega gerði ég það og vill ég þakka öllum sem að komu kærlega fyrir mig og þið sem að fengu enga bollu þá drakk Óli glas fyrir ykkur...

Það var svo bara skellt sér á kaffi ak og var illa gaman þar og má segja að tónlistin n hafi veið rosaleg þar...

Kaffi Akureyri

Takk öll fyrir mig...

Sunnudagurinn var bara tekin snemma og var farið að vinna..það var ekkert smá mikið að gera og ég hef aldrei séð svona mikið fólk inní búðinni en svo þegaar vinnan var búin var fjölskyldu boð hjá Einari og Guðnýju og fékk maður rosa góðan mat þar eins og alltaf...

Svo var bara rólegs kvöld hjá mér...fór að keyra með adda, ívari og óla og svo fórum við aðeins heim til Evu sys og sátum þar og spjölluðuum og svo kíktum við Addi í sjallann á Palla sem að stendur alltaf fyrir sínu... það var snilld þar og dansaði ég eins og vitleysingur þar...svo kom ívar seinna um kvöldð og var fullt af fólki þarna...hitti einar og strákana og kötu mína og fleiri...

Ma´nudagurinn var svo ara rólegu hjá mér og var unnið... kíktum svo að hrfa á Video með Huldu og Liggi Óla...

Í gær fórum við svo í sund og höfum við komist að því að alltaf þegar við förum uppúr sundi þá kemur alltaf sólinn og erum við hætt því að fara...

Svo var skellt sé á landsleikinn og þar hitti ég Arnór sem að ég hef ekki séð í hálft ár...bara gaman það !!! Auk þess sá ég hinn úppáhalds handboltamanninn minn hann LArs Christianssen og spjallaði ég við hann á þýskua...

Sagði honum að ég elskaði hann...

Já ég veit að ég er ekki heilbrigð en svona er þetta.

En ég nenni ekki að skrifa meira bið bara að heilsa ykkur öllum...

Kv.Anna Teresa


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 19:02:39 / gonza

Afmæli í Dag...

Já haldiðið ekki að kellan sé orðin 21 árs...jú ég er orðin alveg rosalega gömul.. en er búin að  hafa það fínt í dag.

Já en það er nú ekki mikið að gerast hja mér núna nema að ég er alltaf að vinna og svo er ég að reyna  að velj mér skóla fyroir næsta ár... en bið bara að heilsa og hafið það gott

kv.Anna Teresa


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 23:24:53 / gonza

Orpin Stúdent....

Jæja ég hef ákveðið að blogga þar sem að ég hef fengið komment um það að ég sé ekki góður bloggari... en allavega það sem að stenduruppi hjá mér seinustu daga er útskriftin mín sem að var á laugardaginn seinasta...

Þetta var búið að vera í undibúningi í marga daga og svo var laugadagurinn tekin snemma með því að vakna klukkan 7 og mætt uppp í skóla klukkan 9...Þar tók við útskriftin sjálf og fannst mér bara mjög gaman þar...

Svo var veisla hjá mér um daginn og komu fullt af gestum og var ég ekkert smá ánægð með að sjá alla gestina að sunnan...það var góður matur og vonandi fannst fólki hann jafn góðum og mér og skemmtu sér....

Ég fékk fullt af pökkum...... kertastjaka x2, Armband x2, hring, hálsfesti, vasa, glös, gjafabréf 5000 í vita le brata, 12000 kr gjafabréf í abaco, 5000 kr gjafabréf í studio 6, málverk x2 og fullt af pening...

Svo var kíkt í sjallan um kveldið og var það hin mesta skemmtun og fengum við mikil hrós fyrir það kvöld...Takk allir útskriftanemar og sérstakleg nefndin og wollli... Þetta var snilld :P:P:P:P:P Mun seint gleyma þessum degi...

Takk fyrir mig mamma mín , það er þér að þakka að ég gleymi ekki þessum degi strax...

Gunna það var æði að sjá þig á útskriftadaginn og þú veist hvað mér þykir ótrúlega vænt um þig og hugsa um þig á hverjum degi...Þú ert yndi og takk fyrir ísinn...

Ég er allavega bún að kayupa mér Ipod nano fyrir smá af peningnum og hitt fer í bankann....

Svo kom Einar minn heim í gær var það æðislega gaman...var búin að bíða lengi !! Svo kom hann mér heldur betur á óvart með því að gefa mér útskriftgjöf og afmælisgjöf saman og í því var...Sími, Magdeburg og Lemgo treyja, miði á James Blunt tónleika, miði á Pink tónleika og 50 evrur í H&M.. Takk fyrir mig elskan þú ert æði

en édg hef ekki mikið meira ða segja var að koma heim af greifanum...var að borða með vinnunni og er að fara að vinna klukkan 8 í fyrramálið...

Svo er bara að kjósa rétt á morgun þið öll :P:P:P

kv. Anna Teresa Morales


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 20:50:05 / gonza

Ég er alveg að verða stúdent...

Já tímin líður sko hratt...ég er semsagt að verða stúdent eftir nokkra daga og ég get hreinlega ekki beðið... Ég er eiginlega að verða búin að undirbúa allt...samt ekki viss í hvor kjólnum ég á að vera, en það reddast !!! Ég held að ég sé líka að verða búin að bjóða öllum...

Við Einar erum að fara að flytja til Elmstetten sem að er bær í norður Þýskalandi og hlakka ég bara mjög mikið til þess...Stolt af Eianri mínum að hafa náð þessum samningi og vonandi gengur okkur bara vel þar...:) þið kíkjið bara í heimsókn

Fer í klipp í vikunni og lit og plokk líka og svo ætlar kata mín að gera neglur á mig,:D:D:D Þannig að þetta er að verða klárt...

ÞAð er nú ekki mikið búið að vera að gerast hjá mér seinustu daga, ég semsagt er að vinna á fullu í 10-11 og er það bara mjög gaman !!

Fór í spænsku prófið í föstudaginn og gekk það svona ágætlega, er samt ekki viss um að ég hafi náð en vona það ! en það kemur bara í ljós ég er allavega búin að fá 4  áttur og á eftir að fá úr sálfræði auk spænsku......

Ég fór í grill í gær til Jónasar þar sem að Jakob og Ívar voru líka...illa gott að borða og ég var sko afvelta eiginlega allt kvöldið.. komu svo gummi trausta og Óli sig og elskan hún kata mín þangað og var stemming á okkur þó að hún hafi samt verið í rólegri kanntinum...við eyddum miklum tíma í að ræða um eina bíómynd sem að er mjög merkileg... náðum flest að skilja hana að lokum..

ákveðið var svo að fara aðeins´í bæinn ég ætlaði nú bara að vera stutt en þar sem að fjörið var svo rosalegt þá var ekki farið snemma heim...gaman að sjá ykkur öll þið sem að ég sá ...

Ég tel að ég, Kata og Sandra höfum ekki verið þær skemmtilegustu á dansgólfinu en það eru samt margir verri en við...það gerðist margt þarna sem að verður ekki gleymt og góðir punktar áttu sér stað... Ég allavega náði að gefa eina eiginhandaáritun :haha::haha::haha:

Ég var svo bara að vinna í dag og var illa ónýt í vinnunni...núna er ég að hugsa um að enda þetta og kannski fara bara að leggja mig þar sem að ég hef gott af því... en ég bið bara að heilsa ykkur og vonandi sjáumst við sem fyrst eða kannski á djamminu á laugardaginn...

kv. Anna Teresa Morales


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13